top of page

Atvinnuhúsnæði miðsvæðis með fjölbreytta möguleika. Kaupa eða leigja

FAXAFEN 10, efri hæð.

Skeifuhverfið er eftirsótt verslunar- og þjónustusvæði vegna miðlægrar staðsetningar, nálægðar við stórar stofnbrautir og aðgengilegar samgöngur. Núna býðst einstakt tækifæri að kaupa þessa eign - eða leigja hana alla eða að hluta.

Laust strax!

NÁNARI LÝSING – Faxafen 10, efri hæð.

Húsnæðið er samtals um 2.292fm. og er vandlega innréttað, þarna var áður Menntaskólinn Hraðbraut.

Það eru m.a. 15 stórar skólastofur með 4 metra lofthæð og stórum gluggum sem og góðri raflýsingu.

Í miðju húsnæðis er mjög stórt opið rými með mikilli lofthæð og náttúrulegu ofanljósi. 

  

Inngangur er í sitthvorum enda hússins og við suðurinngang er hjólastólalyfta. Til beggja enda á hæðinni eru m.a. eldhús, salerni og nokkrar skrifstofur auk efra lofts.

  • Allir innveggir eru léttir timburveggir eða álprófílveggir sem auðvelt er að breyta.

  • Fullfrágengið sprinklerkerfi sem og loftræstikerfi

  • Rafknúnir opnanlegir gluggar.

  • Linoleum dúkar á gólfum

 

Húsnæðið skiptist upp í 10 sjálfstæð og misstór fastanúmer.  

Hver eignarhlutur hefur sér rafmagnsmæli, einn mælir fyrir sameign og greitt er í eignarhlutföllum.

Það er einn hitamælir og greitt er fyrir notkun í hlutfalli við rúmmál eignar.

Malbikuð lóð að heildarstærð 5.394 fm. 

Þetta húsnæði býður upp á mjög mikla nýtingarmöguleika hvort sem er fyrir atvinnurekstur eða gistirými*.

Framundan er mikil uppbygging í hverfinu og því frábær kostur að fjárfesta einmitt núna á þessum framtíðarstað sem mun verða miðja höfuðborgarinnar með fjölbreytta starfsemi og einstaklega góðum samgöngutengingum. 

*ATHUGIÐ

- Teikningar og samþykki  liggja nú þegar fyrir til að breyta húsnæðinu í 18 íbúða gististað í flokki II (sjá teikningu hér fyrir neðan). 

NÁNARI UPPLÝSINGAR:

Sigrún Einarsdóttir - sími 699-1179 - faxafen10@gmail.com

Samþykkt tillaga að 18 íbúða gistirými

Faxafen- tillaga 18 gistirymi.jpg

Teikningar að núverandi húsnæði - 2. hæð

Faxafen_10_2_h%C3%A6%C3%B0_teikning_edit

Teikningar að núverandi húsnæði - 3. hæð

Faxafen_10_3ja_hæð_teikning.jpg
CONTACT

© 2023 by Faber & Co Real Estate. Proudly created with Wix.com

  • Facebook - White Circle
bottom of page